|
05.02.2010 22:25:31 / kýr
... þá er ég enn á lífi. Það hefur ýmislegt gerst síðan ég skrifaði síðast. Ber þá einna helst að nefna að ég og bróðir minn erum hættir að vinna á Grund, hættum um áramótin. Stefán er farinn að vinna á Akureyri en ég er fluttur á Stóra-Hamar 1 og farinn að vinna þar. Stóri-Hamar er nú ekki langt frá Grund, bara hinu megin við Eyjafjarðará svo ég get enn horft yfir túnin á Grund ef ég vil. Á Stóra-Hamri eru 30 kýr og 30 kindur. En ég ætla ekki að fjalla meir um það hér. Ég mun hætta að blogga hér og stofna nýja síðu um Stóra-Hamar, þegar það gerist mun ég reyna að koma því á framfæri á einhvern hátt.
Þangað til næst, hafið það sem best. Sjonni
»
18.12.2009 18:55:47 / kýr
Í dag kom Guðmundur Steindórs og dæmdi 4 kvígur. Undan sama heimanautinu eru Beygla 1257 en hún fékk 83 stig og Útrás 1271 sem fékk 81 stig. Svo eru hinar tvær þær Spíra 8200, undan Spuna 99014, en hún fékk 85 stig og Bilun 8200, undan Hræsing 98046, en hún fékk 87 stig en hennar helsti galli eru tveir aukaspenar að aftanverðu.
Sjonni
»
04.12.2009 19:43:29 / kýr
í morgun bar Grilla 1219 og átti tvær kvígur undan Flóa 02029. Því miður kom seinni kvígan afturábak og dauð, naflastrengurinn hefur slitnað og hún kafnað í leginu. Grilla er undan Rólu 1149 (afurðarhæsta kýrin okkar á síðasta ári) og heimanauti undan Kaðli 94017. Þannig að kvígan sem lifir er með stórt Kaðalsgen í sér og ætti að geta mjólkað eitthvað í framtíðinni. Verst að hin var dauð, en þær voru báðar í stærri kantinum.
Læt þetta duga, Sjonni
»
28.11.2009 08:38:48 / kýr
þá er best að segja frá einhverju. Það voru plægðir rúmir 40 ha um daginn. Svo fór ég með bygg í Bústólpa í vikunni þó svo að það væri fljúgandi hálka en ég keyrði bara varlega og var klukkutíma á leiðinni, sem er um 20 km. Svo neyddist maður til að keyra skít enn einu sinnu úr kálfahúsinu, það þarf stanslaust að keyra úr því sökum þess hversu lítið það er. Það eru alltaf einhverjir burðir og nú í vikunni átti Kleina 1222 nautkálf undan Húf 07049 og vá hvað kálfurinn er lítill, ég er viss um að hann hafi ekki verið meira 15kg við fæðingu. Ég hef aldrei séð svona lítinn kálf áður, fyrir utan þessa 8kg kvígu sem var í fréttunum í haust. Það væri gaman að vita undan hvaða nauti sú kvíga var, hvort það séu einhver tengsl hér á milli. Það lítur líka út fyrir að veturinn sé kominn, snjóþekja yfir öllu og frost. Það er samt ekki útilokað að það eigi eftir að koma góð sunnanhláka í vetur og þá verður kannski hægt að nýta tækifærið og plægja meira.
Læt þetta duga núna Sjonni
»
12.11.2009 21:37:09 / kýr
Í gær byrjaði ég að plægja og þegar ég var að klára að plægja Kerið, sem er rétt rúmir 4 ha en skurðir skipta því niður í þrennt, tókst mér að festa traktorinn. Eins og nafnið gefur til kynna þá er þetta frekar blautt land og hefur verið í órækt í mjög mörg ár en í vor sáði ég rýgresi í 1,5 ha af þessu landi. Ég ætlaði að athuga hvort ég gæti ekki stækkað það aðeins en lennti þá í bleytupytti og festi vélina. En Þórir á Torfum kom og kippti mér upp. Því næst fór ég að plægja annað stykki sem ég var einnig að plægja í dag en það gekk pínu brösulega því það brotnaði bolti og svo var að losna upp á boltum, svo maður verður að halda áfram með það stykki á morgun. Það sem sagt liggur fyrir að plægja næstu daganna.
Sjonni
»
05.11.2009 08:37:46 / kýr
Loksins að maður segi eithvað. Það er búið að vera að keyra skít úr fjósinu undanfarna daga og ég reikna með því að það klárist í dag. Svo á að halda áfram að koma aðstöðu í stand fyrir gripi á hálmi en það mun taka einhverja daga. Svo þarf að fara að plægja eitthvað. Enn á eftir að garða hálm á tæpum 30 ha. Enn eru 3 kvígur úti en á sunnudaginn náðum við einni inn. Við eyddum 6 tímum á sunnudaginn við að reyna að ná þessum kvígum en þær létu ekki segjast. Eftir mikil hlaup, vesen og nokkrar ónýtar girðingar að ógleymdum svita og hungri þá var ákveðið að hætta eftir þessa 6 tíma en þá voru kvígunnar komnar saman við kvígurnar í Ytra-Felli og eru þar enn. Segja má að Ytra-Fell sé þarnæsti bær, þó hann sé í svokallaðri efri byggð, og er ein á á milli sem er ekki vatnsmikil á þessum tíma. Það voru einnig notaðir 2 bílar og 1 krosshjól í þennan eltingarleik en það skilaði aðeins 1 kvígu heim. Það gerðist nú tvígang að kvíga sneri sér við og hjólaði í manninn á krossaranum og í annað skiptið féll hann ásamt hjólinu í jörðina. Maður hefur aldrei lent í öðru eins.
Læt þetta duga í bili, maður verður bara þreyttur að hugsa um þennan bölvaða eltingarleik.
Sjonni
»
16.10.2009 12:02:58 / kýr
Já það er víst kominn tími á að ég segi frá einhverju. Við erum núna að reyna að drífa áfram þreskinguna. Það hafa alltaf verið einhverjir burðir og í gær kom hundraðasti kálfur ársins, af þeim eru 54 kvígur og 46 naut. Svo var verið að klára að binda hálminn af "neðri" ökrunum. Svo þarf að fara að huga að skítkeyrslu og plægingu. Ekki má heldur gleyma að binda síðan hálminn af "efri" ökrunum þegar verður búið að þreskja. Um daginn tókum við geldkýrnar og kvígurnar inn, nema 5 kvígur sem létu eins og andskotinn. Það gekk engan veginn að ná þeim inn, þær voru alveg skelfilega tregar. Læt þetta duga núna og reyni að vera duglegri að segja frá því sem er að gerst.
Sjonni
»
28.09.2009 15:11:00 / kýr
Já það er eitt og annað búið að gerast á undanförnum dögum, kýrnar fóru síðast út á fimmtudaginn var og fara ekkert meira út, geldneytin eru enn úti. Helst ber kannski að nefna að það eru alltaf einhverjar að bera og báru ekki nema 5 í morgun. Ég veit ekki hvað ég á að segja meir.
Sjonni
»
16.09.2009 12:35:02 / kýr
Jæja í gær var klárað að þreskja "neðri" akrana sem er um helmingurinn. Uppskeran er bara góð að mínu mati, um 4 tonn á ha af 90% þurru korni. Það hefur gengið vel að þreskja og vonandi gengur bara jafnvel að hirða hálminn.
Læt þetta duga núna.
Sjonni
»
11.09.2009 12:24:06 / kýr
Það er eitt og annað búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, ég veit ekki hvað það eru margir kálfar fæddir en þeir eru margir. Það er búið að slá og binda 8 ha af rýgresi. Það var sáð í Holtið, sem er 10,8 ha. Notuðum einn rigningardag um daginn og keyrðum skít úr kálfahúsinu. Svo er ýmislegt annað sem við höfum verið að brasa, óþarfi að týna allt til. Í gær var síðan byrjað að þreskja kornið en við náðum að þreskja á 1,5 vagn áður en að það byrjaði að rigna. Við ætlum svo að reyna að halda áfram að þreskja núna á eftir matinn, það er góður blástur búinn að vera í allan morgun.
Sjonni
»
23.08.2009 18:56:28 / kýr
Á föstudaginn var háin slegin af gömlu túnunum og svo var bundið í gærkveldi. Bráðabyrgðatölur segja að það hafi verið 270 baggar í heildina sem gera tæpa 11 bagga á ha.
Svo bar ein kvíga í dag og önnur í gær, það komu kvíga og naut en bæði dauð, og nautið kom með afturlappirnar fyrst. Svo er von á að fleiri kvígur beri núna í vikunni.
Sjonni
»
18.08.2009 12:25:55 / kýr
Já það þurfti ein að bera í gærkveldi þannig að það báru 4 í gær og komu 2 kvígur og 2 naut. Maður bíður ekki eftir því hvort einhver beri heldur hversu margar beri sama daginn. En það er nú samt bara jákvætt að þær beri þannig að ekki getur maður verið að kvarta.
Sjonni
»
17.08.2009 15:28:37 / kýr
Byrjað var að slá há á föstudaginn var og voru nýræktinar frá í fyrra slegnar, eða 14 ha og gengust af því rúmlega 160 stórbaggar. Þessir 14 ha hafa því skilað 430 böggum í sumar og ef við yfirfærum það í rúllur sem eru 1,3 þá samsvarar þetta 43 rúllum á ha. Alls ekki slæmt það. Þetta var bundið í gær. Svo ætlum við að bíða aðeins eftir öruggum þurrki til að slá restina af túnunum. Þá verður rýgresið kannski slegið um leið. Kornið lofar góðu og er útlit fyrir góða uppskeru. Nú er bara að vona að það komi sólardagar svo hægt sé að klára heyskapinn og fara að þreskja fljótlega. Það er byrjað að bera á fullu, 3 búnar að bera í dag og komu 2 kvígur og 1 naut. Það sem af er árinu eru fæddir 66 kálfar og skiptist það í 33 kvígur og 33 naut.
Sjonni
»
13.08.2009 21:16:21 / kýr
Bæði í gær og fyrradag þá var ég að plægja ca. 10,8 ha stykki. Þetta tún hefur ekki verið slegið í tíu ár en oft verið undir beit fyrir kvígur og voru kvígurnar settar á þetta tún þegar þær fóru út í vor. Nú eru þær á beit á túnum við hlið þessa túns sem nefnist Holt en þar er gamalt eyðibýli sem hét Holt og sjást enn votta fyrir húsatóftum. Það gekk bara vel að plægja og svo er meiningin að sá í þetta sem fyrst svo það nái að loka sér fyrir veturinn og verði fallegt tún næsta sumar. Svo er búið að rigna aðeins þessa dagana, skúrir öðru hvor. Grasið sprettur því vel núna. Maður bíður bara eftir öruggum þurrki til að geta slegið seinni slátt. Þetta er ágætt í bili.
Sjonni
»
09.08.2009 18:44:00 / kýr
Já það kom mér skemmtilega á óvart í dag þegar ég komst að því að við eigum eina nautsmóðir. Það er Suga 8186 undan Þorra 04005 og mf er Almar 90019. Hún bar síðast um miðjan júlí og átti naut undan Húsa 01001. Ég er búinn að ákveða að sæða hana næst með Síríus 02032, það ætti að koma efnilegur kálfur úr því sama hvors kyns hann verður.
Bless í bili Sjonni
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|